Konungur Norðursins

skyggst inn í heim konungborinna

19.06.2007 10:11:33 / h.arni

Helgin og fleira

Jæja góðu lesendur

ég mætti galvaskur heim síðasta fimmtudag með einn svía með mér (hann er að vinna með mér) lánaði honum hjól og sagði honum nú að fara út og skoða sig um. Hann fór út í 15 min og kom svo aftur og varð að leggja sig heila helgi eftir þessar 15 min. erfiði.

Ég reif svo pallinn í sundur að hluta til að laga hann aðeins til. Ég, Gréta Stinni, Auður og Ásta fórum í ísbíltúr á Grenivík á lau og Grétu tókst að villast á Grenivík (kommon). Ég Auður og Ásta og Stinni reyndum síðan að draga Svíann út á sun en hann varð að hvíla sig eftir hjólatúrinn. En við fórum litla familían í jólahúsið og í Vín og grilluðum svo um kvöldið. Þetta var bara mjög góð helgi.

 og ég á bara 5 vikur eftir í sumarbúðunum.


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 01:21:58 / h.arni

Baðið

Jæja núna er baðið tilbúið Abba er í sturtunni búin að vera í 45 mínútur, vá hvað það verður dýrt að vera með þessa nuddsturtu heitavatnsreikningurinn á eftir að rjúka upp úr öllu valdi. en svona er þetta.

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 23:50:38 / h.arni

Pallur og bað!!!

Jæja þá er pallurinn tilbúinn bara einn skjólveggur eftir og svo ætlar Viddi að koma og setja rafmagn út á pall svo að það sé hægt að setja pott einhverntímann. Núna er ég búinn að vera gera upp baðherbergið og ég sverð það að það geri ég aldrei aftur. Ég á enn eftir að setja nokkrar flísar og svo þarf ég að setja fúu og mála eina umferð hengja upp dótið og þá e´r baðherbergið tilbúið og ég get farið að lifa lífinu.

Ég var að vinna í gær á Todmobil balli og það var hörku stuð, ég Villa og Lena fórum nokkrum sinnum og dönsuðum. Það var ekki mikið að gera svo að það gafst tími til þess. En ég hef aldrei verið hrifinn af þessari hljómsveit en VÁ hvað það er gaman á balli með þeim.

Við fengum hamborgara þegar vinnan var búin, það var aðeins betra en skinkusalat.

En ég kveð að sinni


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 18:35:39 / h.arni

Kosningar og evróvisjon

Já enn og aftur velur þjóðin þá bestu til að leiða landið. Það er mér mikil ánægja að segja að mikklar líkur eru á því að XD og XB fari aftur saman í ríkisstjórn. Ég veit svo sem ekki hvað skal segja með það, ég held að það sé skássti kosturinn af öllu illu, en ég held að það ætti að vera talið sér og sagt frá því í súluriti þeir sem skila auðu. það að skila auðu er jafn mikil kosning einsog að X-a við einhvern staf.

En hvað er málið með þessa blessuðu söngvakeppni, ég segi hættum að senda fólk í þetta rugl og gefum peningana til afriku. Það eru bara austurevrópa sem á séns. Það verður fróðlegt að sjá hvort að norðurlandaþjóðirnar komist uppúr undanúrslitunum næst, nú verðum við öll þar nema Finnland. Ég segi hættum í þessu rugli.

Ég fór í partý í gær til hans Salvars og ég verð að segja hann býr í rosa flottri íbúð.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 11:30:32 / h.arni

Pallurinn

Jæja núna er pallurinn að verða til. ég er búinn að vera í eina viku að moka og eitra og smíða. Ég er búinn að moka allt og steypa stólpana, ég er búinn að leggja jarðvegsdúkinn og setja grjót ofan á hann. Ég er búinn að smíða skjólvegg sunnanmeginn og ég er líka búinn að leggja flesta dregarana. Ég er samt núna byrjaður í próflestri svo að hlé verður gert á pallavinnu :(  Vildi samt mikklu frekar vera úti að smíða en inni að lesa. Ég er að fíla mig í þessari verkavinnu. ég er samt ekki viss um að ég myndi vilja fara í byggingarvinnu í sumar, þetta er bara gaman af því að ég er að gera þetta fyrir sjálfan mig.

ég er búinn að taka gróðurhúsið niður og laga hluta af beðunum. Þetta á eftir að verða flottasti garðurinn í bænum.

En núna verð ég að fara að lesa.

auðvitað blogga ég núna þar sem ég á að vera að lesa.

konungurinn kveður


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 17:19:21 / h.arni

Lindin

Já þá er maður orðinn útvarpsmaður. Ég sit núna í nýju hljóðveri Lindarinnar að taka upp þáttinn minn og er að spila lag með lofgjörðarhljómsveit Vegarinns sem heitir Rís upp, hresst og skemmtilegt lag. Ég veit reyndar ekki hvenar þátturinn er sendur út, maður er enn í prufu og það þarf að skoða þáttiin og gá hvort að ég sé ekki að gera allt rétt. Ég held reyndar að ég sé ekki með neitt yndislega rödd í útvarp. Sem betur fer samt er þa´tturinn tekinn upp en ekki sendur út beint þannig að ég get klippt allt smjatt og uuuuuuuu sem ég segi mjög oft. Í byrjun var ég líka með smá Hallbjarnar takta og sagði alltaf gjörðu svo vel. En þið þurfið endilega að still á Lindina. Það er 103,1 á Akureyri, 102,9 í Rvk og svo er það bara á Lindin.is fyrir þig Valborg. Ég læt ykkur vita hvenar þátturinn verður sendur út.

 

kv hinn konunglegi útvarpsmaður 


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 15:07:42 / h.arni

Heimapróf

Heimapróf er sérstakt fyrirbæri, það virkar þannig að maður fær spurningar á netinu og svo hefur maður einn sólarhring til að svara þeim. Maður má nota hvaða gögn sem er sér til aðstoðar nema lifandi gögn. Það er galli við heimapróf og hann er sá að maður heldur alltaf að maður þurfi ekki að læra fyrir þau vegna þess að maður er með bókina og netið sér til aðstoðar. Þetta er mikill misskilningur, vegna þess að spurningarnar eru mikklu erfiðari og viðameiri. Ég er að reyna falla ekki í þessa grifju. En núna er skólinn að klárast eða þar að segja tímarnir og svo fullt af verkefnum sem tekur við.  og svo auðvitað útvarpsmenskan.


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 13:36:13 / h.arni

Hvað á maður að kjósa?

Núna í skólanum er alltaf einu sinni í viku einn frambjóðandi úr einhverjum stjórnmálaflokk að segja sína stefnu og ég verð að segja mér líst ekki á neinn, þetta eru allt einhverjir þurrsvampar. Ég held að stjórnmálamenn séu falskristur, þeir leiða okkur á villu vegar, hjálpa okkur að ganga á hinum breiða vegi. Líst ekki á þetta.

Annað núna um daginn þá opnuðum við nýtt hljóðver Lindarinna hér á Akureyri og það er svo magnað hvað Guð getur notað eina litla hugmynd að risa verkefni, ekki nóg með það að við erum komin með hljóðver hér á AK, þá hefur þetta verkefni sameinað kristið fólk ú mörgum ólíkum söfnuðum í eitt. Guð gerir kraftaverk á hverjum degi.

Enginn er búinn að koma að skoða Gránu en það gæti verið að Siggi á neðrihæðinni vilji kaupa, en hann er að vinna á Kárahnjúkum og kikkar örsjaldan í bæinn.

Stinni litli bróðir Öbbu er að koma eftir 8 daga, þá verður geggjað stuð, við litla fjölskyldan ætlum að kikka suður í nokkra daga. Hann verður hjá okkur í rúmar 2 vikur og það er stíft prógramm.

Ég er núna hættur sem fjármálastjóri FSHA og hef líka lokið störfum sem gjaldkeri KFUM & KFUK á AK. og ég verð að segja að það er þungu fargi af mér létt, þó að það sé smá söknuður af nefndarstörfum.

Ég er að bóka ferð til Egyptalands. Ég, Þorsteinn, Guðbjörg og Solla ætlum að fara í lok ágúst það verður geggjað gaman. Við verðum í 12 daga ji hvað það verður gaman.

Munið að hlusta á Lindina fm 103,1 á AK, 102,9 í reykjavík svo getið þið bara sett á stöðvar leit.


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 13:56:21 / h.arni

Lífið er hverfullt

Já Valborg mín þessi færsla er fyrir þig. (þar sem þú ert sú eina sem lest þetta)

 Ég var á KFUM fundi í gær og þar vorum við að tala um hvað maðurinn er fullkominn. Það var dáldið merkilegt hvað drengirnir voru ekki að átta sig á því að bara það að geta hreyft puttann sé kraftaverk, einnig skildu þeir ekki hvað það þarf mikkla tilviljun að barn verði til og verði eðlilegt, það þarf svo lítið að fara úrskeiðis til að barnið verði ekki heilbrigt.

Svo er það framtíðin. Hvað á maður að gera í framtíðinni, þetta veldur mér áhyggjum á hverjum degi, hvað ef maður fær ekki vinnu, hvað ef maður veikist og getur ekki unnið, hvað ef maður verður bara róni, hvað ef hvað ef.

Jæja úr pælingum í raunveruleikann.

Ég er búinn að setja Gránu á sölu og hún hefur vakið mikkla athygli. Ég verð nú samt að segja að það er dáldið sárt að vera selja sínu fyrstu íbúð, þetta gerir mann svo gamlan. En ég vona að ég græði eitthvað á þessu ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 16:25:37 / h.arni

Gleðilegt ár

Konungurinn óskar öllum þegnum sínum gleðilegs nýs árs.

En marg hefur á daga mína drifið á nýju ári. Ég fór beint á starfsmannagleði hjá skemmtistaðnum Sjallinn þegar ég koma norður, ég og Óðinn mættum aðeins of seint og var fólk frekar pirrað enda byrjaði skemtunin ekki fyrr en við vorum mættir. Ég og Lilja áttum okkar venjulega spjall sem var dúndur gaman. Ferðinni var síðan beint á kaffi AK þar sem við dönsuðum fram á rauða nótt.

Hilmar og Helga buðu í vísa máltíð síðasta föstudag og Haffi og Sigrún í partý og var þetta bara með betri föstudögum sem ég hef lifað. Síðan komu Ragga og familí, Gréta og familí og Heiða og familí til okkar á laugardaginn og við hjúin grilluðum fyrir mannskapinn og síðan var spilað fram eftir.

Ég er byrjaður að kenna upp í fjalli og það  var æðislegt færi um helgina en frekar hvasst á laugardaginn.

Díana ætlar að koma til mín næstu helgi og Þorsteinn kom til landsins í gær.


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 10:52:59 / h.arni

Jólafrí

Jæja núna er ég kominn í jólafrí og ekkert verður bloggað meir á þessu ári.

Konungurinn óskar þegnum sínum gleðilegra jóla og bið ykkur Guðs blessunar á nýju ári og þakka það gamla.


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 15:38:49 / h.arni

rok og rassgat

Já hér er nú bara rok og aftur rok, en það er í góðu lagi því að í RVK er rok og rassgat. Fríða frænka er búin að vera í heimsókn og við fórum í gær til Grétu vinkonu og gerðum konfekt, talið barst að ferð til Nýju Jórvíkur sem Heiða B er að fara með familíunni, það kom skemmtilegt komment þar svona í ljósi þess hverjir sátu við borðið :^) Við frændsystkinin ætlum í bíó í kvöld þar sem að veðrið er allveg brjálað þá gátum við ekki farið til Hríseyjar og fengið okkur að borða á Brekku einsog planið var. Við ætluðum líka á skíði en það er ekki í boði í svona veðri. Ég fer suður á fim og ætla að stoppa í Grundarfirði og fara í klipp til Guttu systur ég þarf að vera fínn fyrir ballið á fös sem ég er að fara með Stínu, Mæju og Díu það á eftir að vera svaka stuð, ég er mega spenntur. En ég kveð að sinni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 17:11:33 / h.arni

já eitt og annanð

Ég var að spá í einu, ég er einn af þeim sem blóta aldrei, ég er einn af þeim sem kallast má kristinn og er ekki feiminn við það að játa trú mína. Svo hef ég verið að pæla, "heiðingjarnir" eru oft að kvarta yfir fólki sem talar mikið um trú sína. Svo var ég að spá, ég þarf að hlusta á "heiðingjana" kvarta yfir trú minni, blóta og tala um sína heiðnu siði allan daginn út og inn en ef ég ætla að segja eithvað þá er ég ofsatrúarmaður. Ég spyr, hvað er svona betra að tala um mammon-djöflatrú en þá trú sem færir okkur kærleika, umburðarlyndi, ást og gleði. Nei bara að pæla Svo var ég að pæla í einu líka. Kuldi! við íslendingar kvörtum yfir kuldanum, snjónum og öllu þessu en ég veit ekki hvað ég heyri það oft að það hafi verið mikklu betra í gamla daga, þegar það var snjór og maður gat leikið sér í snjónum og haft það gaman, við getum aldrei verið ánægð, Nei bara að pæla Annað sem ég er búinn að vera spá í það eru próf. Próf er svona tæki sem á að mæla hversu vel maður þekkir námsefnið, þá er það spurningin mín getur ein spurning úr 100 bls endurspeglað þekkingu mína á öllum bls-unum. Nei bara að pæla. Svo hef ég verið að pæla í öðru Jólin eru hátíð kristinna manna fyrst og fremst en núna eru kaupmannsheiðingjarnir búnir að stela þessari hátíð með pakkaflóði og græðgi, aðrir heiðingjar eru hættir að kalla þetta jólahátíð og kalla þetta X-hátíð hvað yrði sagt ef þetta yrði gert við múslima þeirra aðal hátíð tekin burt. Nei bara að pæla En ég held að þetta sé nóg í bili.

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 20:10:02 / h.arni

Íslensk lög eru í ruglinu!!!

Ég er semsagt að skrifa ritgerð um barnaníðinga og meðferðir fyrir þá. Í heimilda leitinni þá rakst ég á íslensk lög og ég komst að því að það er fyllilega eðlilegt að vera 60 karlmaður og eiga 14 ára kærustu (hún er full vits og þroska og samþykkir að stunda kynlíf) svo framalega að sem ég tek það ekki uppá myndband og geymi það, þá fyrst er ég orðinn barnapervert. Er þetta ekki dáldið klikk, ég má framkvæma verknaðinn en ég má ekki eiga hann á bandi. Sigga Sigga Sigga ég get ekki sagt neitt annað, það þarf eitthvað að fara skoða þessi lög aftur. Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að maður þyrfti að vera á aldrinum 14-17 til að geta stundað löglegt kynlíf saman og 18 og eldri, börn með börnum og fullorðnir með fullorðnum en það er ekki þannig.

Konungurinn kveður í sjokki


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 15:19:13 / h.arni

Búinn að vera að pæla

Ég á vin sem ég hef alltaf haldið að væri nú ekki mikið fyrir Jesú Krist, en um daginn þá var ég í mat hjá honum og þetta kom til tals og eini munurinn á honum og mér (sambandi við trúna á Jesú Krist) var að hann vill ekki trúa að Guð faðir sé þannig að hann sendi son sinn til að deyja. Þegar á umræðunni stóð þá átti ég ekki til svar og ég er búinn að pæla dáldið í þessu og þetta gaf mér reyndar hugmynd af hugleiðingu, en núna er ég kominn með svar ( að ég held). Sko, við meigum ekki líta á Guð föður og Guð soninn sem tvær persónur, Jesús er ekki bara sonur Guðs hann er líka Guð. Þegar við skoðum hinn þríeyndaGuð  þá er það Guð faðir, Guð sonur og Guð heilagur andi, Guð er þarna meigin atriðið þetta eru aðeins 3 birtingar myndir Guðs en alltaf bara einn Guð. Þannig að vinur minn góður þá í rauninni sendi Guð ekki son sinn til að deyja heldur sig sjálfan (nú kemur flókið) en var samt að fórna sínum syni. og Jesús Kristur er við hægri hönd Guðs á himnum en er samt Guð. Ég veit að þetta er flókið og þetta útskýrir þetta ekki allveg nógu vel og ég þarf að skoða þetta betur en vildi bara pósta þessu svo að þú gætir pælt í þessu líka því ég veit að þú munt gera það.

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Þrí amígos
Roadtrippklúbburinn
Gamli stöddígrúp
Dagsetning
28. janúar 2012